Tuesday, March 18, 2008

Same old, same old

Alltaf sama sagan. Ég, eða þetta sem heldur mér gangandi - innri maskínan - hrekkur alltaf í gang þegar lyktin af vorinu kemst í umferð. Og ég fann hana sko um helgina. Á sunnudaginn. Með Möx. Hún fann hana líka.

Allt fer á fullt, hausinn á mér hreinlega iðar af allskyns slæmum, vanhuxuðum hugmyndum og einstaka sinnum leka þær hreinlega útum nefið á mér. (oft með hor á vorin) Liggur við að ég þjáist af fótaóeirð í leiðinni.

Svo ofan á allt það, á ca. tveggja ára fresti (2004, 2006, 2008?), dreg ég mig á asnaeyrunum til útlanda. Ég hreinlega veit ekki hvort ég myndi mæla með því eða á móti að unglingar á heimilum landsins séu sendir sem skiptinemar út um allar trissur. Foreldrar ættu allavega að hafa í huga að þegar fræm útþrárbakteríunnar er sáð er ekki aftur snúið.

Eftir að hafa farið bloggrúntinn sé ég að ég er alls ekki ein um að fá þetta sjálfvirka "GERÐEITTHVAÐ" spark í rassinn með vorinu. Veit ekki hvað þið ætlið að gera í þessu guys and girls en ég er allavega byrjuð að sækja um skóla í útlöndum. 2 so far. Og er bara rétt að byrja.

Vil annars bara þakka Guði eða hverjum sem það var sem fann upp internetið og Google. Mar gæti ekki sótt um magadansnámskeið í undergroundskóla í Uzbekiztan án þeirra.

3 comments:

Anonymous said...

ohhhh mig langar á magadansnámskeið í undergroundskóla í Uzbekiztan...!

mér líst samt ekkert á að þú sért að fara að flýja land... verður þú samt ekki örugglega komin aftur þegar pabbahelgarnar fara að kikka inn??

Anonymous said...

það er bara same old, same old þegar mar kíkir hérna inn....

Anonymous said...

Já ætla að reyna að koma með einhverjar æsandi fréttir hérna inn á næstu klukkutímunum