Friday, February 29, 2008

Blogg fyrir rauðhærða

Jæja, hún Guðný Þóra rauðhaus með meiru er búin að grátbiðja mig um færslu tvo daga í röð þannig ég ákvað að verða við þessum bljúgu bænum hennar. Verst að ég hef voða lítið að segja. Hef ekkert verið að bardúsa neitt merkilegt undarfarnar vikur og mánuði. Hef aðallega verið mjög dugleg í deit&hitt menningunni. Það felst þó aðallega í fylleríum, sms-um og MæSpeis MSG sendingum. En ég vil alls ekki JINX-a neitt gott þar með því að blása það upp hér frekar.
En ég hef einnig horft mjög mikið á sjónvarpið þannig ég ætla að taka það helsta fyrir hér.

ANTM

Þessi þáttur fer alveg í mínar fínustu fínustu. Hvar finna þeir þessar gellur eila? Það mætti halda að það sé eitthvað sambandi á milli minnkandi líkamsþyngdar og fækkandi heilasellna þarna í henni Ameríku. Held að þær lifi allar á kolvetnasnauðu fæði. Til að heilinn starfi rétt og vera þokkalega andlega stabíll þarf líkaminn kolvetni. Þessir keppendur eru lifandi sönnun þessarar kenningar.

High School Reunion

Annar þáttur sem hefur verið alveg ómissandi á hate to watch listanum mínum. Alveg magnað hvað liðið verður nostalgíað í þessum þáttum. Þau hafa öll safnað heilum tíu árum í reynslusarpinn og ættu að vera orðin alveg vel sjóuð félagslega í dag... en nei. Það tók þau 0,1 sek að detta aftur inn í karakterinn sem þau voru þá.
Þetta var reyndar einnig raunin á síðasta reunion-i sem ég fór á. Margir sem duttu alveg í sama gírinn. Hefði verið spennandi að sjá hvernig það hefði farið ef við hefðum verið föst saman með nóg af áfengi og heitum pottum í einhverjar vikur.

Allir CSI þættirnir

Eru orðnir svo skelfilega þreyttir að ég vona að allar CSI derhúfurnar í Þjóðhátiðar krúinu okkar séu bara týndar. Hver er ekki orðinn þreyttur á eintóna Horacio? Eða á þessum sífelldu upplýsingum og predikunum sem fylgja alltaf með í hverju einasta skoti. Hvort sem þetta lið standi yfir einhverju greyið sundurskornu fórnarlambinu on the field eða inni í líkhúsi. Jafnvel yfir öllum heimsins mögulegu græjum sem virðast komast fyrir í eina litla rannsóknarherberginu þeirra. Ekki eins og þessar græjur séu ekki nóg til að rýja þættina trúverðugleika heldur þarf að troða inn ótrúverðugustu upplýsingahlöðnustu samtölum í geiminum líka.

Law&Order

Þoli ekki D´Onfrio gaurinn. Og heldur ekki þetta svart/hvítt saksóknaralið.

The Drew Carey Show

Sama hvað þeir láta sætu ljóshærðu óléttu kærustuna hans Drew vera í ljótum fötum trúir mar því bara ekki að hún hafi sjálfviljug farið undir hann. Jafnvel þó hún hafi leikið í 300 Guiding Light þáttum.

Nýi Survivor þátturinn

Hve lengi er hægt að teygja eina lopapeysu?

Laugardagslögin

Talandi um að teygja lopann. Hefur einhver horft á hvern einasta hátt frá upphafi til enda? Ég horfi oftast á fyrstu fimm mínúturnar bara til að sjá hverju gyðjan hún Ragnhildur klæðist. Og hvað Selmu mistekst alltaf að toppa hana. Hún kemst bara ekki með tískutærnar þar sem Ragnhildur hefur hælana.

Life

Interesting þáttur so far

Boston Legal

Ótrúlega skemmtilegur þáttur. Ógsla ánægð með allt þetta gamla lið sem alveg stendur fyllilega fyrir sínu þó það sé gengið langt á seinni helming ævinnar. Eini mínusinn er zoolander króníska beinagrindin, aka Saffron Buroughs. En hún er líka eina undartekningin frá "góður þáttur" reglunni

Ugly Betty

Elskana

Less then Perfect

Vinnur á en ég er samt á báðum áttum

The Dead Zone

Ef mar á hálftíma til að eyða í ekki neitt þá er allt i lagi að hafa kveikt á DZ á meðan mar les bók eða er í tölvunni.

Svo lenti ég á einhverri Kúrdískri VH1 (ellimanna MTV) stöð um daginn í Kapalkerfi í Heiðarholtinu í KEF. Það var mjög áhugavert. Öll myndböndin voru eins. Kall að syngja. Og nokkrir kallar með handklæði á hausnum í bakgrunni sem héldust svona kross í hendur og stigu hliðar saman hliðar dans á meðan þeir söngluðu í, að er hljómaði, einhverri spes kúrdískri falsettu.

Svo er einn þáttur, The Break Up, á RÚV sem skoraði ansi hátt í áhorfskönnunum en ég hef því miður alveg misst af honum. Doldið fúlt. Þá hefði ég getað horft á sjónvarp 97 tíma í viku í staðinn fyrir einhverja aumingjalega rúmlega 96 tíma.



Wednesday, February 27, 2008

123 síðan lokuð tímabundið

Þannig mar er eitthvað að vesenast hér svona rétt á meðan. Til að drepa tímann.

Fylgist með