Wednesday, March 26, 2008

Páskarnir

Voru alveg hræðilega skemmtilegir.

Djammaði með Þórhöllu á miðvikudaginn og var að langt fram á næsta dag. Hrottalega gaman.
Reis svo upp um átta leytið á fimmtudaginn og var förinni heitið í Kaffitárspartý þar sem Guðdís boss eldaði alveg dýrindis lúðu í vínberjasósu. Ég held ég hafi aldrei áður smakkað jafn góðan fisk.
Nema svo daginn eftir hjá mömmu. Lax með mangó og pistasíuhnetum. Það var líka alveg skelfilega gott.

Eftir meltuna hélt ég í sveitina. Og skemmti mér þar einnig langt fram á næsta dag. Aðallega með Garðbúum. Fór síðust að sofa og vaknaði fyrst. Hélt vöku fyrir greyið stelpunni í kojunni fyrir neðan. Og reyndi svo að ræsa þessar útungunarvélar vinkonur mínar til að spjalla við mig í þynnkunni. Tinna fór alveg fram úr mínum björtustu væntingum og lét mig leggjast á pallinn fyrir utan í hláturskrampaköstunum og sólinni.

Var svo í bænum og þóttist fara snemma að sofa á laugardaginn til að vakna snemma fyrir fjölskyldubrunchinni heima á Sunnubrautinni. Nýpressaður morgunsafi, amerískir klattar, beikon og egg og allskonar fleira möntsjí endurnærir allar þreyttar djammbeyglur. Þannig eftir að ég melti lambalærið um kvöldið fór ég enn og aftur í sveitina, (Keflavík) og fór í partý með aðallega Sandgerðingum og svo dántán. Var obbsla gaman líka.

Og þótt að Garðbúarnir og Sandgerðingar hafi sannarlega staðið fyrir sínu þá stóð einn Njarðvíkingur samt upp úr.

Að lokum vil ég bara samhryggjast ykkur hinum sem misstuð af mér og öllu stuðinu. En örvæntið ekki. Það koma páskar aftur á næsta ári.

Tuesday, March 18, 2008

Same old, same old

Alltaf sama sagan. Ég, eða þetta sem heldur mér gangandi - innri maskínan - hrekkur alltaf í gang þegar lyktin af vorinu kemst í umferð. Og ég fann hana sko um helgina. Á sunnudaginn. Með Möx. Hún fann hana líka.

Allt fer á fullt, hausinn á mér hreinlega iðar af allskyns slæmum, vanhuxuðum hugmyndum og einstaka sinnum leka þær hreinlega útum nefið á mér. (oft með hor á vorin) Liggur við að ég þjáist af fótaóeirð í leiðinni.

Svo ofan á allt það, á ca. tveggja ára fresti (2004, 2006, 2008?), dreg ég mig á asnaeyrunum til útlanda. Ég hreinlega veit ekki hvort ég myndi mæla með því eða á móti að unglingar á heimilum landsins séu sendir sem skiptinemar út um allar trissur. Foreldrar ættu allavega að hafa í huga að þegar fræm útþrárbakteríunnar er sáð er ekki aftur snúið.

Eftir að hafa farið bloggrúntinn sé ég að ég er alls ekki ein um að fá þetta sjálfvirka "GERÐEITTHVAÐ" spark í rassinn með vorinu. Veit ekki hvað þið ætlið að gera í þessu guys and girls en ég er allavega byrjuð að sækja um skóla í útlöndum. 2 so far. Og er bara rétt að byrja.

Vil annars bara þakka Guði eða hverjum sem það var sem fann upp internetið og Google. Mar gæti ekki sótt um magadansnámskeið í undergroundskóla í Uzbekiztan án þeirra.

Wednesday, March 12, 2008

Fylgni eða orsök?



En fyrst þettta: mig langar svo í skúffuköku að ég er að farast. Svona skúffuköku með dökkbrúnum botni, aðeins ljósara smjörkremi og kókósmjöli oná. Shiiiii...

En já. Orsök og fylgni. Gæti jafnvel verið að þetta félli undir tvöfalt siðgæði.

Frumubreytingar.

Læknar halda því fram að konur sem eigi marga bólfélaga séu líklegri til þess að fá frumubreytingar og óléttar konur.

Bella segir: Konur sem eiga marga bólfélaga og ólétta konur fara bara oftar í skoðun til kvensjúkdómalækna en hinar. Punktur.

Annað double standard dæmi:

Eins og mér finnst Dr. Phil of hitta í mark þá er hann alveg glataður þegar kemur að unglingakynlífinu. Hann kemur því inn hjá stelpum að þær séu hórur ef þær eru að sjúga sig inn í partý og þar fram eftir götunum. Í staðinn fyrir að taka þessa gaura sem ERU AÐ LÁTA LITLAR STELPUR SJÚGA Á ÞEIM TYPPIÐ TIL AÐ KOMAST Í PARTÝ upp á eyrunum og hreinlega setja þá í höggstokka á einhverju torgi einhvers staðar. Þetta snýst allt um framboð og eftirspurn. Ekki hvort 15 ára stelpa sé mella eða ekki mella.

Ef engin spurn er eftir því að 15 ára stelpur séu að totta gaura til að komast í partý þá er ekkert framboð. Punktur.

Enn annað double standard dæmi:

Núna eru klamidíu augl. að gubbast út úr öllum fjölmiðlum alls staðar þar sem tuggið er að stelpur verði ófrjóar af klamidíu. Ein af hverjum fjórum og eitthvað blablabla. Afhverju er alltaf þessum hræðslukynfræðsluáróðri beint að stelpum? Eru engir kynsjúkdómar sem gera stráka ófrjóa? Eða er það í þessu eins og sumu öðru, að stelpunum er gefin ábyrgðin til að bera? En strákarnir... tja þeir eru og verða bara strákar... greyin....

Baaah gæti alveg endalaust pirrað mig á þessu. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sem þessir gaurar free- ride- a og komast upp með ýmislegt bara því þeir eru strákar.

Á móti eru nottla líka dæmi um að stelpur snúa einhverjum um fingur sér bara því þær eru stelpur en það eru venjulega sömu vitlausu, ginkeyptu gaurunum sem er snúið... sorry strákar. Svona er þetta bara.

Monday, March 10, 2008

Ágætis mánudagur

Lífið svona rétt lallar áfram þessa dagana. Er ekki búin að vera að spá neina hluti í gegn, bara rétt þreifað á yfirborðinu því ég hef aðallega legið á blístri og ekki haft getu til að velta mér eða neinu fyrir mér. Verð líklega mother fokkin huge ef ég fer ekki að setja síu á matarinnkaupin hjá pabba. Hann kaupir bara óhollt og vill alltaf nammi og ís eftir mat.

Held að efnahagskreppan eigi fyrst eftir að gera vart við sig í auglýsingaiðnaðinum. Allir stuck up grafísku teiknararnir (núna er ég að meina Sigga O) fara að betla á götunum og fashionable starfsheiti eins og hugmyndasmiðir og viðburðastjórnendur heyra sögunni til í bili. (þangað til í næstu uppbylgju a. m. k.)

Gos er aftur farið að kosta 155 á bensínstöðvum (líklega 417 kr í 10/11) eins og fyrir vasklækkunina í fyrra.

Er geðveikt spennt að sjá hvort verð á húsnæði eigi eftir að breytast eða standa í stað.

Er líka spennt að sjá hve mikið hærra en 155 krónur bensínlíterinn þarf að hækka til að við hreinlega leggjum bílunum okkar. Meina minn bíll er tiny tim. Það er ekki langt síðan það kostaði ca 3 þúsund í mesta lagi að fylla hann. Nú er það ca 4500. Það er um 50% hækkun.
Geðveiki.
Þurfum kannski að læra að car-poola eins og restin af Evrópu.

Óléttumálin standa þannig:

Tinna er á góðri leið með að vera etin upp til agna af mini-tino. Þetta var fyrirsjáanlegt þar sem mini-tino var þegar orðin mjög kröfuhörð á mat strax í móðurkviði.

Rauðhausinn í vinkonuhópnum lét annan rauðhaus barna sig. Er að spá í að gera veðjpool. Líkurnar eru 1 á móti milljón að barnið verði ekki rauðhært.

Sigga G fer alveg að kúka út úr sér sínu öðru barni.

Og Eva er svo þar rétt handan við hornið.

Annars hefur það verið bara frekar rólegt í þessari barneignardeild þetta árið...

Ég er ekki heit fyrir neinum strák í augnablikinu sem er mjög tómlegt. Svona er þetta að kíkja ekki út á lífið heila helgi. Mar dettur alveg út úr deitoghitt rútínunni sinni.


DJÓK!
Ég er ógeðslega heit fyrir Mads Mikkelsen, dönskum leikara sem lék m. a. Tristan í King Arthur.
Þessi dúd er svo heitur...






Á svona danskan hátt. Nenni ekki að setja fleiri myndir inn því þetta er eitthvað drasl forrit sem getur ekki sett myndirnar hvar sem er. En hér er linkur á fleir hot danskemads myndir í boði google:

Wednesday, March 5, 2008

Patrick Swayze við dauðans dyr?

Orðið á gossip street er að Patrick, dirty dancing, Swayze sé með ólæknandi krabbamein. Hver man ekki eftir Swayze klassík á borð við "nobody puts baby in the corner" eða lagið hans, She´s like the Wind?

En þetta eru frekar óáræðanlegar upplýsingar frá einhverjum Séð&Heyrt miðlum:

http://www.nationalenquirer.com/patrick_swayze_cancer_weeks_live/celebrity/64581
www.perez.hilton.com

Vonandi bölvuð lygi

Langar í hvolp

Ok ég fékk mér pizzu í dag þannig núna langar mig í hvolp.

Lítinn sætan krútthvolp sem kúkar og pissar útum allt en mar elskar hann samt!

Hvað kosta Labrador eða Schaefer hvolpar eila? Langar ekki í svona lítinn rottuhund, ljótan bulldog eða grimman Rottweiler. Langar í lítinn hvolp sem verður að risahundi sem hægt er að hlaupa hálfmaraþon með tvisvar á dag.

Monday, March 3, 2008

Langar svooo...

Í pizzu. Ég er að deyja.

Annaðhvort í Pizzu með extra ost og pepp
Eða í hvítlauksbrauðs-pizzu
Eða pizzu S eða pizzu R á Eldsmiðjunni
Eða barbeque pizzuna á Pizza Hut
Eða pizzu með skinku, beikon, lauk, ananas og extra osti
Eða pizzu með skinku, banönum og ananas
Eða pizzu með pepp, banönum, ananas og aukaosti
Eða Thai kjúklingapizzuna frá California Pizza Kitchen

Kræst ég hef aldrei vitað annað eins. Er búið að langa í pizzu í 2 daga núna. Og ekki lítið. Heldur alveg ógeðslega mikið. Ég get visualæzað bæði útlitið og bragðið að þeirri pizzu sem mig langar í þá og þá stundina. Oh my god!

Vill einhver koma í pizza lunch á morgun?
Eða pizza brunch?
Eða pizza kaffi?
Eða jafnvel pizzu dinner
Og fyrst við erum komin þangað afhverju ekki late pizzu-dinner... í staðinn fyrir að fara í ísbúðina

Anyone?

Strákar

Sama hvað mar verður gamall og reyndur í strákafaginu tekst þeim alltaf að ganga fram af manni. Hve ódannaðir, klunnalegir og bara hreinlega vandræðalega vitlausir þessar elskur geta verið.

Stórmerkilegt.