Wednesday, June 13, 2007

700 dátar...

Ákváðu að koma til Reykjavíkur í tilefni af afmælinu mínu. Bandaríski, spænskir og þýskir.

Þessir þýsku er mín sérgrein þar sem ég tala málið, og sértaklega þar sem skipið er frá Sachsen. En ég bjó ákkurat í Sachsen Anhalt sem er þarna á milli, Sachsen, Sachsen-Anhalt og Nieder-Sachsen. Og það skip leggst ákkúrat á Miðbakkann þannig að við verðum practicly nágrannar!

Vil nota tækifærið og minna á afmælið mitt næstu helgi.
Allar sem bindi og vindlingi geta valdið mæti á Séstvarlagötum kl 21: 07 laugardaginn 16. júní.Fyrrnefnt plan stendur enn svo eru það bara draumadátar fram á nótt

Monday, June 4, 2007

Mikill skortur á ungum konum í Færeyjum

Mikill skortur er á ungum konum í Færeyjum samkvæmt nýjum tölum frá hagstofu eyjanna. Þannig eru 13% færri konur en karlar á aldrinum 20-24 ára og 11% færri á aldrinum 20-39 ára.

Á færeyska vefnum kveik.fo segir, að um 900 færri konur en karlar séu á þessum aldri og nærri 2000 færri konur á aldrinum 20-64 ára.Það er ekki fyrr en komið er á áttræðisaldurinn sem þessi mynd breytist.

Þann 1. janúar voru Færeyingar 48.350 talsins, þar af 25.135 karlar og 23.215 konur.

Hóphelgarbjörgunarleiðangur íslenskra einstakra kvenna til Færeyja

  • Hópstjórar Eva og Bella
  • Lagt af stað frá Rvk á föstudegi. Heim á sunnudegi. Nægur tími.
  • Lítið sofið, mikið djammað
  • FærEyjar 2007 yrði góður undirbúningur fyrir Eyjar 2007

Áhugasamar skrái sig í komment hér fyrir neðan.