Mikill skortur er á ungum konum í Færeyjum samkvæmt nýjum tölum frá hagstofu eyjanna. Þannig eru 13% færri konur en karlar á aldrinum 20-24 ára og 11% færri á aldrinum 20-39 ára.
Á færeyska vefnum kveik.fo segir, að um 900 færri konur en karlar séu á þessum aldri og nærri 2000 færri konur á aldrinum 20-64 ára.Það er ekki fyrr en komið er á áttræðisaldurinn sem þessi mynd breytist.
Þann 1. janúar voru Færeyingar 48.350 talsins, þar af 25.135 karlar og 23.215 konur.
Hóphelgarbjörgunarleiðangur íslenskra einstakra kvenna til Færeyja
- Hópstjórar Eva og Bella
- Lagt af stað frá Rvk á föstudegi. Heim á sunnudegi. Nægur tími.
- Lítið sofið, mikið djammað
- FærEyjar 2007 yrði góður undirbúningur fyrir Eyjar 2007
Áhugasamar skrái sig í komment hér fyrir neðan.

No comments:
Post a Comment