Wednesday, March 26, 2008

Páskarnir

Voru alveg hræðilega skemmtilegir.

Djammaði með Þórhöllu á miðvikudaginn og var að langt fram á næsta dag. Hrottalega gaman.
Reis svo upp um átta leytið á fimmtudaginn og var förinni heitið í Kaffitárspartý þar sem Guðdís boss eldaði alveg dýrindis lúðu í vínberjasósu. Ég held ég hafi aldrei áður smakkað jafn góðan fisk.
Nema svo daginn eftir hjá mömmu. Lax með mangó og pistasíuhnetum. Það var líka alveg skelfilega gott.

Eftir meltuna hélt ég í sveitina. Og skemmti mér þar einnig langt fram á næsta dag. Aðallega með Garðbúum. Fór síðust að sofa og vaknaði fyrst. Hélt vöku fyrir greyið stelpunni í kojunni fyrir neðan. Og reyndi svo að ræsa þessar útungunarvélar vinkonur mínar til að spjalla við mig í þynnkunni. Tinna fór alveg fram úr mínum björtustu væntingum og lét mig leggjast á pallinn fyrir utan í hláturskrampaköstunum og sólinni.

Var svo í bænum og þóttist fara snemma að sofa á laugardaginn til að vakna snemma fyrir fjölskyldubrunchinni heima á Sunnubrautinni. Nýpressaður morgunsafi, amerískir klattar, beikon og egg og allskonar fleira möntsjí endurnærir allar þreyttar djammbeyglur. Þannig eftir að ég melti lambalærið um kvöldið fór ég enn og aftur í sveitina, (Keflavík) og fór í partý með aðallega Sandgerðingum og svo dántán. Var obbsla gaman líka.

Og þótt að Garðbúarnir og Sandgerðingar hafi sannarlega staðið fyrir sínu þá stóð einn Njarðvíkingur samt upp úr.

Að lokum vil ég bara samhryggjast ykkur hinum sem misstuð af mér og öllu stuðinu. En örvæntið ekki. Það koma páskar aftur á næsta ári.

No comments: