Jahá, síðasta skipti sem hringt var úr heimasíma Sunnubrautarinnar í Domino´s var í kvöld. Þ. e. ef áhugi vaknar ekki fyrir pizzu með extra skammti af hráka...
Sóttu pizzu þar í kvöld, Ha&Gu, og fengu kolvitlausa pizzu afgreidda. Feðginin biðu samviskusamlega eftir að kolvitlausa pizzunni var fleygt í ruzlið og "rétt" pizza gerð á meðan var Ma heima að farast úr stressi því það er ekki töff að mæta of seint í Leikhús.
Við systkinin kíktum svo á kræsingarnar heima á meðan Ha æddi um húsið og greiddi sér, klæddi sig og á einhvern undraverðan hátt setti á sig bindið og reimaði skóna á sama tíma... Þegar Ma&Ha voru rétt farin að varp öndinni léttar á leið útum dyrnar heyrist í Gu:
"Þetta er ekki rétt pizza heldur. Ég get ekki borðað þetta"
Tók okkur Jay alveg rúman hálftíma í að ákveða hvort okkar yrði leiðinlegi kvartgaurinn og á endanum var það ég sem tók mig til og var pirraði en samt sem áður réttláti sári kúnninn sem vildi fá RÉTTU pizzuna senda heim, alveg upp að dyrum.
Skilningsríki vaktstjórinn sagði það vera ekkert mál og að pizzan yrði sett í forgang.
Og einum og hálfum tíma eftir að hringt var í Domino´s í upphafi rennir pizzustrákurinn í hlað með hálfvolga pizzuna og segir:
"Já ég á að taka hina pizzuna til baka"
Bella:
"Neibb. Bless."
Og pizzudrengurinn hélt heim á leið ákaflega stúrinn, heilli vitlaust afgreiddri pizzu tvisvar í röð fátækari...
En kommon, í fyrsta lagi sagði vaktstjórinn í símanum aldrei að ég ætti að skila klúðurpizzu #2. Í öðru lagi þá voru þau þegar búin að klúðra þessu áður og þá tóku þau klúðurpizzu eitt til baka. Og í þriðja lagi þá var ekki eins og við hefðum fengið afslátt af einu né neinu.
Þannig að sem neytandi þakka ég bara Domino´s fyrir að mega borga fullt okurverð fyrir að fá aðra pizzu af tveimum í hús rúmum einum og hálfum tíma seinna og láta gefa í skyn að ég sé lygari og gráðug með því að, ekki biðja mig..., heldur SEGJA mér að skila Klúðurpizzu #2.
Næst þegar ég panta pizzu hjá Domino´s ætla ég að biðja um vaselín með...
Sunday, April 6, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

1 comment:
Lámark að koma með vaselín!!!
Maður á kannski að ferðast bara með það... ávallt viðbúin!:P
Post a Comment