En fyrst þettta: mig langar svo í skúffuköku að ég er að farast. Svona skúffuköku með dökkbrúnum botni, aðeins ljósara smjörkremi og kókósmjöli oná. Shiiiii...
En já. Orsök og fylgni. Gæti jafnvel verið að þetta félli undir tvöfalt siðgæði.
Frumubreytingar.
Læknar halda því fram að konur sem eigi marga bólfélaga séu líklegri til þess að fá frumubreytingar og óléttar konur.
Bella segir: Konur sem eiga marga bólfélaga og ólétta konur fara bara oftar í skoðun til kvensjúkdómalækna en hinar. Punktur.
Annað double standard dæmi:
Eins og mér finnst Dr. Phil of hitta í mark þá er hann alveg glataður þegar kemur að unglingakynlífinu. Hann kemur því inn hjá stelpum að þær séu hórur ef þær eru að sjúga sig inn í partý og þar fram eftir götunum. Í staðinn fyrir að taka þessa gaura sem ERU AÐ LÁTA LITLAR STELPUR SJÚGA Á ÞEIM TYPPIÐ TIL AÐ KOMAST Í PARTÝ upp á eyrunum og hreinlega setja þá í höggstokka á einhverju torgi einhvers staðar. Þetta snýst allt um framboð og eftirspurn. Ekki hvort 15 ára stelpa sé mella eða ekki mella.
Ef engin spurn er eftir því að 15 ára stelpur séu að totta gaura til að komast í partý þá er ekkert framboð. Punktur.
Enn annað double standard dæmi:
Núna eru klamidíu augl. að gubbast út úr öllum fjölmiðlum alls staðar þar sem tuggið er að stelpur verði ófrjóar af klamidíu. Ein af hverjum fjórum og eitthvað blablabla. Afhverju er alltaf þessum hræðslukynfræðsluáróðri beint að stelpum? Eru engir kynsjúkdómar sem gera stráka ófrjóa? Eða er það í þessu eins og sumu öðru, að stelpunum er gefin ábyrgðin til að bera? En strákarnir... tja þeir eru og verða bara strákar... greyin....
Baaah gæti alveg endalaust pirrað mig á þessu. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sem þessir gaurar free- ride- a og komast upp með ýmislegt bara því þeir eru strákar.
Á móti eru nottla líka dæmi um að stelpur snúa einhverjum um fingur sér bara því þær eru stelpur en það eru venjulega sömu vitlausu, ginkeyptu gaurunum sem er snúið... sorry strákar. Svona er þetta bara.

4 comments:
Kallar verða ófrjósamir af lekanda!
Var að heyra það á eff emm.
já ég heyrði það líka á effemm um daginn... ætli effemm sé rekið af feministum?
Já öööörugglega.
Mestfemístum
Ég bakaði mér sonna köku í gær.. nammigott ;)
Allt gert fyrir krakkana...
Post a Comment