Wednesday, March 5, 2008

Langar í hvolp

Ok ég fékk mér pizzu í dag þannig núna langar mig í hvolp.

Lítinn sætan krútthvolp sem kúkar og pissar útum allt en mar elskar hann samt!

Hvað kosta Labrador eða Schaefer hvolpar eila? Langar ekki í svona lítinn rottuhund, ljótan bulldog eða grimman Rottweiler. Langar í lítinn hvolp sem verður að risahundi sem hægt er að hlaupa hálfmaraþon með tvisvar á dag.

4 comments:

Anonymous said...

verður hann að vera hreinræktaður? oft hægt að fá ókeypis blandaða hunda sem pissa og kúka jafnmikið og hlaup hratt :)

02 said...

jámm... hreinræktaðir eru yfirleitt á bilinu 100 - 300 þús. Heyrði (fyrir að vísu svolitlu síðan) að Labradorinn væri að fara á 150-200 þús. En líka þegar maður leggur svona pening í hund, þarf maður líka að gera miklar kröfur. Eru foreldrar mjaðmamyndaðir, augu hrein og svo frv. Og með hreinræktaða hunda veistu nákvæmlega hvernig týpu þú ert að fá. Blendingar eru eins og orðið segir blandaðir.. gætu verið með skap frá einni tegund.. feld frá annarri og svo framvegis..
En alls alls alls ekki verri hundar og oft sárvantar heimili fyrir blendinga.. það er bara betra að vita hvað er á bakvið þá, svo maður getur stúderað aðeins þær tegundir.

Og rottweiler er ljúfur sem lamb að eðlisfari.. það er maðurinn sem elur grimmdina í honum.. en hann er líka ekki fyrir manneskju sem er að fá sér fyrsta hund, því hann þarf mikinn aga.

Ohhh mig langar í hvolpavitleysing:)

Anonymous said...

Ok Hugrún þú þarft greinilega að vera on board þegar ég kemst loksins á stað að framkvæma þessa hundhugmynd. Sem verður líklega einhvern tímann á næsta áratug.

Hef samt gælt við þetta alveg lengi lengi lengi. En mar verður fyrst eila að vera í þannig vinnu og svona að þetta sé hægt.

Litlir hvolpar meika varla að vera einir í hálftíma

02 said...

Hehehe... ég er áhugamanneskja um hunda og hef alltaf verið:D